Já ég prjónaði mikið árið 2015, það er alltaf gaman að taka það saman og sjá svona í einu yfirliti.
Ég klárið þetta teppi handa Aþenu ömmugulli. En ég ætlaði að vera mun fljótari með það en síðan varð ég að setja bann á öll önnur verkefni fyrr en ég væri búin með þetta teppi. Skemmtilegt að prjóna tvöfalt prjón
Fyrsta verkefnið mitt var hringtrefill á Sofiu frænku sem hún pantaði sér. Rautt og blátt er í uppáhaldi hjá henni núna.
Petrea með hólkinn fyrir myndatöku áður en ég sendi hann til Kaupmannahafnar
Hef gaman af því að prjóna sokka. Prjónaði þessa og er búin að vera á leiðinni að skrifa uppskriftina síðan eða í tæpt ár! Spurning um að gera eitthvað í því á þessu ári
Kjólar á ömmuprinsessurnar mínar. Var lengi búin að leita að verkefni fyrir þetta garn. Norski barnakjólinn kemur vel út og stelpurnar eru flottar í þeim
Ég tók þátt í vettlingaprjóni þar sem þemað var hjörtu og Freja vettlingar urðu fyrir valinu.
Systir mín hjólar mikið og þegar ég sá þessa vettlinga á netinu bara varð ég að skella í eina handa henni.
Vesti á Hauk, hann var lengi búinn að tala um að ég prjónaði vesti og þegar ég sá þessa uppskrift ákvað ég að skella í eitt. JB vest frá Marly Bird
Spiderman peysa á Móra ömmugull. Þessi klikkar ekki fyrir Spiderman aðdáendur
Aþena ömmugull pantaði bleika peysu með Mínu Mús og auðvitað varð ég við því
Maía Sigrún ömmugull byrjaði á leikskóla og fékk auðvitað peysu og húfu
Útskriftargjöf fyrir frænkur. Hnésokkar – alltaf gott að eiga svoleiðis
Fór á Bindifestival í Færeyjum í apríl, var með námskeið í tvöföldu prjóni og naut mín umvafin gestrisnum Færeyingum
Féll alveg fyrir þessum stuttbuxum þegar ég sá þær. Stjörnustuttbuxur prjónaðar á Aþenu og Maíu
Móakotspeysa var búin að vera lengi á listanum hjá mér. Prjónaði Móbjörgu sem smellpassar á Jóhönnu mína
Þegar við mæðgur keyptum Bjarkarhól – tókum við að okkur uppskriftir í Bændablaðið. Þetta var fyrsta uppskriftin frá mér – Góða peysan, prjónaði tvær
Kanínuvettlingar á Maíu
Sumarhúfa á Maíu
Keypti mér Navia garn í Færeyjum í þessa skemmtilegu peysu á Maíu Sigrúnu
Kaðlapeysan Hrífa á prjóna nr 12 – langt síðan ég hef prjónað með svona grófum prjónum
Aþena var mikið með húfur þetta sumarið og prjónaði ég þessa á hana. Uppskriftin heitir Fern
Sá þessar fallegu leggings á norskri síðu og prjónaði eitt stykki. Paleas leggings
Molund hat, húfa eftir uppskrift frá Bittu Mikkelborg
Stutta hettupeysan Selma kom í Bændablaðinu
Í júní var komið að því að prjóna kjól úr Stone Washed. Skömm að því að segja að ég hef aldrei náð mynd af barninu í kjólnum. Kjörinn leikskólakjóll
Þessi kjóll var búinn að vera lengi á biðlistanum hjá mér, skemmtilegur að prjóna. Maía Sigrún tekur sig vel út í sumarkjólnum sínum. Uppskriftin heitir Ava Tunic og fæst á Ravelry
Ermar er alltaf gott að eiga og voru þessar mikið notaðar. Frábært að eiga utan yfir kjóla, uppskriftin heitir Twyla og ég notaði Stone Washed garn
Peysan Perlur fór í Bændablaðið
Borðtuskur, jú prjónaði nokkrar. Bitta Mikkelborg er í uppáhaldi hjá mér og voru mínar tuskur prjónaðar eftir uppskrift frá henni þetta árið.
Sumarið er ágætur tími til að undirbúa börnin fyrir haustið og mín litlu fengu auðvitað lopavettlinga
Barnabörnin fengu líka nýja sokka fyrir leikskólann. Aþena og Maía fengu eins sokka
Móri fékk þessa
Kaðlahúfa úr Merino Ull
Hvolpasveitapeysan fyrir einlægan aðdáanda þessara hvolpa. Mikil gleði og erfitt var að fá hann úr peysunni sama hversu heitt var úti….
Polku-myssy kaðlahúfa á Maíu
Herrapeysan Rákir fyrir Bændablaðið
Frost vettlingar sem ég teiknaði upp eftir gömlum vettlingum frá tengdamömmu
Kolkrabbahálskragi á Maíu og Móra
Kaðlahúfan Matti á Móra
Og ein aukalega fyrir búðina
Hjartakaðlahúfa fyrir Aþenu – hún kallar hana Frozen húfu
og ein auka fyrir búðina okkar
Fleiri kaðlahúfur
Petrea mín á engil á himnum, prjónaði þessa vettlinga handa henni til minningar um litlu Emilíu Mist
Sá þennan skemmtilega kjól í Færeyjum og keypti mér garn og uppskrift í kjóla en hef bara prjónað annan af tveimur ennþá…..
Myria sokkar úr nýju sokkabókinni hennar Bittu
Leikskólagallinn Grallari – 4 eintök
Færeyska sjalið Demantar
Afkvæmið barnaútgáfa af Erfingjanum
Fleiri hnésokkar, á eftir að skrifa uppskriftina af þeim
Keypti Minions leggings á stelpurnar og ákvað að prjóna kjóla/túniku við þá í hlutlausum lit
Aþena fékk Smilla´s kjole
Maía fékk Fionas Top
Hér er komið myrkur og komið að endurskinsgarninu. Prjónaði vettlinga og húfur
Hálskragi á Aþenu – uppskriftin heitir Løvfallhals
Kisuvettlingarnir Kettunøsin
Jólapeysa á rauðvíns- og hvítvínsflöskur
Prjónaði mér dúk
Smekkpils á Maíu
Húfu og vettlinga handa mömmu
Peysan Bjarni á soninn
Guðmunda fékk tvöfalt prjón vettlinga í jólapakkann
Hlið A
Hlið B
Tátiljur í jólapakka
Endaði á að prjóna tvær endurskinshúfur í jólapakka.
Græna fyrir fótboltastelpu í Breiðablik
og rauða fyrir fótboltastelpu í Val
Þessir vettlingar voru á dagskrá um jólin ásamt nokkrum prufum og eldhúshandklæði sem ég var að gera. Kláraðist á nýju ári svo það fer ekki með hérna.
Já þetta er bara slatti sem „datt“ af mínum prjónum árið 2015. Nú er komið nýtt ár og gaman að sjá hvað maður tekur sér fyrir hendur þetta árið.
Prjónakveðja
– Guðrún María